Það er ótrúlega einfalt að vippa upp ljúffengum eftirrétti með engri fyrirhöfn.
Þessi hefur í mörg ár verið uppáhalds hjá minni fjölskyldu en það eru fáir eftirréttir sem eru í senn jafn ljúffengir og auðveldir í framkvæmd enda eru súkkulaði, rjómi og jarðarber hálf guðleg blanda af hráefnum.
Þú þarft…
- Öskju af ferskum og góðum jarðarberjum
- Gott súkkulaði 70%
- T.d. eitt Snickers, 4 fílakaramellur eða annað gott
- Hrískúlur
- Pela af rjóma
- Fallegar skálar, bolla eða glös.
Þrífðu jarðarberin og skerðu þetta græna í burtu. Ef berin eru stór skaltu skera þau í helminga. Lítil jarðarber eru samt yfirleitt alltaf betri á bragðið.
Settu örlítinn rjóma í lítinn pott og bræddu súkkulaðið og sælgætið í rjómanum á lágum hita meðan þú hrærir varlega í. Þeyttu restina af rjómanum.
Láttu nokkrar Hrískúlur í botninn á hverri skál, þeyttan rjóma yfir, því næst jarðarberin og toppaðu svo með heitu súkkulaðisósunni!
Þetta slær alltaf rækilega í gegn enda hreint unaðslegur eftirréttur sem tekur ekki nema 5 mínútur að reiða fram. Mmmm*
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.