Það er aldrei of seint að skella í nokkrar smákökur og alls ekki verra ef þær innihalda enga óþarfa óhollustu.
Þessar dásamlegu smákökur er algjörlega himneskar!
- 100g olía
- 1 dl agavesýróp
- 100g döðlur, smátt skornar
- 125g kókosmjöl
- 100g spelt
- 50g kakóduft
- 1 tsk vínsteinslyftiduft
- ½ – 1 tsk vanillu duft
Hitið ofninn í 180°C. Hrærið saman olíu og agave þar til allt blandast vel saman, bætið restinni af uppskriftinni útí, setjið bökunarpappír á ofnplötu, setjið deigið á með teskeið, bakið í 5 mín við 180°C.
Kælið á grind. Þessar þarf að passa að baka ekki of lengi.
Mér finnst líka dásamlegt að setja lítinn súkkulaði-bita ofan á hverja köku, þegar þær koma úr ofninum. Fyrir okkur súkkulaði-unnendur, er gott að setja ca. 50 gr. í deigið… ég nota 70%.
Heitt kakó, smákökur og mandarínur, eru algjörlega ómissandi á aðventunni… Njótið!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.