Fyrir þau sem elska grænkál, og hin líka – þetta er súperhollt sælgæti sem gott er að grípa í á milli mála eða bara þegar nartþörfin grípur þig.
Grænkál hefur verið kallað tískugrænmeti ársins og full ástæða til að það komist í tísku. Það er ljúffengt og stútfullt af vítamínum og mjög auðvelt að rækta það hér á landi enda hefur það verið gert um árabil.
Grænkálssnakkið er fljótlegt og auðvelt að útbúa og það eru góðar líkur á að þú og þínir verðið háð þessu innan skamms. Prófaðu endilega…
AÐFERÐ
Hitið ofninn í 200 gráður.
Rífið kálið/blöðin í bita af stilkunum, veltið upp úr smá ólífuolíu í skál, stráið smávegis af sjávarsalti saman við (líka gott að nota hvítlaukssalt og prófa sig áfram með fleiri kryddtegundir, jafnvel fínt rifinn parmesanost).
Dreifið yfir bökunarplötu sem klædd hefur verið bökunarpappír.
Bakið í 5-7 mínútur, eða þar til kálið er orðið stökkt – passið að brenni ekki.
Njótið!
Rósa starfaði um árabil sem blaða- og fréttamaður lengst af hjá fréttastofu Stöðvar tvö og Bylgjunnar. Hún hefur skrifað um mat og matargerð í ýmis blöð og tímarit, þar af í rúman áratug fyrir Gestgjafann. Rósa gaf út sína fyrstu matreiðslubók, Eldað af lífi og sál, haustið 2009. Nú starfar Rósa við ritstörf hjá Bókafélaginu og er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.