Fórstu að tína bláber í haust? Þá er um að gera að nota þessar lystisemdir í ljúffengar múffur.
Hér erum við með krassandi bláberjamöffins sem einnig er hægt að gera banana og kókosbragð af eða bara bæði til að hafa smá fjölbreytni en þá skiptirðu deiginu í tvennt og setur ýmist bláber eða banana og kókosmjöl út í deigið.
Deig í 12 möffins
3½ dl hveiti
1½ dl haframjöl
2 tsk lyftiduft
2 dl hrásykur
sjávarsalt á hnífsoddi
2½ dl 18% sýrður rjómi
2 stk egg
1 tsk rifinn sítrónubörkur
¾ dl repjuolía
1½ dl haframjöl
2 tsk lyftiduft
2 dl hrásykur
sjávarsalt á hnífsoddi
2½ dl 18% sýrður rjómi
2 stk egg
1 tsk rifinn sítrónubörkur
¾ dl repjuolía
Fyrir bláberjamöffins:
3½ dl fersk eða frosin bláber
3½ dl fersk eða frosin bláber
Fyrir banana og kókosmöffins:
1½ dl af maukuðum banana
1¼ dl kókosmjöl
1½ dl af maukuðum banana
1¼ dl kókosmjöl
Rjómaostakrem:
250 g rjómaostur við stofuhita
50 g mjúkt smjör
2 dl flórsykur (2-2,5 dl)
1 msk sítrónusafi
250 g rjómaostur við stofuhita
50 g mjúkt smjör
2 dl flórsykur (2-2,5 dl)
1 msk sítrónusafi
Aðferð: Stillið ofninn á 180°. Blandið saman þurrefnunum. Setjið kókosmjöl saman við ef gera á banana- og kókosmöffins. Hrærið saman í annarri skál sýrðum rjóma, eggjum, sítrónuberki og repjuolíu. Hér er gott að bæta bananamauki saman við hræruna ef gera á banana- og kókosmöffins. Bætið saman við þurrefnin og hrærið varlega. Hér er gott að bæta bláberjum saman við ef útbúa á bláberjamöffins. Skiptið deiginu niður á 12 möffinsform og bakið í 25 mínútur eða þar til bakað í gegn. Varist að ofbaka. Hrærið öllu saman sem á að fara í kremið og smyrjið því jafnt á kökurnar. Skreytið með kókosmjöli eða söxuðum hnetum.
Höfundur: Erna Sverrisdóttir

Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.