Það eru fáar stundir jafn skemmtilegar og ‘bröns’ með fjölskyldu og vinum, hvort sem er í hádegi á laugardegi eða sunnudegi.
Brönsinn er einskonar sambland af morgunmat og hádegis mat og orðið er samsett úr ‘breakfast’ og ‘lunch’ samansem ‘brunch’. Eitt af því sem er algjörlega ómissandi í góðan dögurð, en svo kallast brönsinn á íslensku, eru lungamjúkar amerískar pönnukökur með sýrópi. Hér er uppskrift að þessu góðgæti, en hún er fengin að láni frá Ernu Sverrisdóttur heimilisfræðikennara sem skrifar á Gott í Matinn.
INNIHALD
3¾ dl hveiti
3 msk hrásykur
2½ tsk lyftiduft
¼ tsk matarsódi
½ tsk sjávarsalt
1 stk vel þroskaður banani, maukaður
4 dl ab mjólk
2 stk egg
½ tsk vanilludropar
50 g smjör, brætt
MEÐLÆTI
grísk jógúrt, eftir smekk
niðurskornir bananar, eftir smekk
jarðarber, eftir smekk
hlynsíróp, eftir smekk
AÐFERÐ
1. Blandið öllum þurrefnunum saman í skál.
2. Pískið saman í annarri skál, eggjum, ab-mjólk, bönunum og vanilludropum. Hellið saman við þurrefnin og hrærið.
3. Setjið smjörið saman við. Hrærið.
4. Steikið á pönnu við meðalhita. Berið fram með bananasneiðum, jarðarberjum, grískri jógúrt og hlynsírópi.
Njótið!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.