Ég hef verið mikill aðdáandi marsípans frá því ég man eftir mér, ég elska t.d. marsípan molana í Nóa konfektinu og kransakökur.
Ég rakst svo á uppskrift á netinu af einfaldri möndluköku með marsípani. Allir marsípan aðdáendur munu elska þessa köku. Kakan er þétt, bragðið er ljúft og uppskriftin einföld, þvílíkur unaður!
INNIHALD
250 g marsípan
250 g smjör
150 g syku
1/4 tsk möndludropar
1/4 tsk vanilludropar
6 stór egg
150 g hveiti
1 tsk lyftiduft
AÐFERÐ
Marsípan, smjör og sykur eru sett í matvinnsluvél og blandað vel saman. Droparnir eru settir út í og blandað. Eitt egg er sett út í blönduna í einu og blandað mjög vel saman á milli. Að lokum er hveitinu og lyftiduftinu bætt út í og blandað vel. Ég setti deigið í 18 cm smurt hringform, bakaði hana við 170 gráður í klukkutíma.
Ég valdi að smyrja kökuna með bleiku glassúri og fannst það fullkomna möndluköku fílinginn.
- 250 g flórsykur
- 3 msk mjólk
- 1 dropi ljósbleikur matarlitur
Linda fæddist þann 23. október árið 1988. Í dag er hún mamma í sambúð og með geysilegan áhuga á innanhúshönnun en áhuginn vaknaði þegar hún keypti fokhelt hús árið 2013. Verandi lífefnafræðingur hefur Linda líka mikinn áhuga á snyrtivörum og virkni þeirra. Linda er líka mikill bakari en hún bakar til að fá útrás fyrir sköpunargleðina og nýtur þess að taka fallegar myndir af afrakstrinum. Allar myndir í matarbloggfærslum eru því teknar af Lindu sjálfri og þú getur lesið meira af efni frá henni bæði hér undir notendanafninu og á mondlur.com