Það er ótrúlega lítil fyrirhöfn að útbúa góðan “smoothie” en þetta er holl og góð tilbreyting inn í venjur dagsins.
Þessir drykkir gefa þér auka kraft inn í daginn, algjörlega lífsins nauðsyn að hressa sig við og við og um að gera að drekka bara ávaxtaskammtinn sinn í stað þess að borða hann. Fyrir vikið færðu fallegri húð, betri meltingu og góð vítamín í kroppinn.
Fersk C-vítamín bomba
Hráefni
- 1 appelsína, flysjuð
- 1/4 bolli hrein jógúrt, ég nota frá bíó-bú
- 2 matskeiðar hreinn appelsínusafi
- 1/4 teskeið vanillu-duft, mér finnst vanillan frá Rapzunel æði
- klakar
Blandið öllu vel saman þar til silkimjúkt, hellið í fallegt glas og njótið.
Himnesk ananas-sæla, flytur bragðlaukana í sólina
Hráefni
- klakar
- skyr m/vanillu frá bíó-bú
- kókos eftir smekk
- 1 bolli ananas, smátt skorinn
Blandið öllu vel saman í “blender”.
Ferskur og orkumikill drykkur með jarðarberjum og kiwi
Hráefni
1 1/4 bolli eplasafi
1 banani, skorinn smátt
1 kiwi, skorið smátt
5 frosin jarðarber
1 1/2 tsk hunang
Blandið öllu vel saman og njótið í botn.
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.