Þessi jarðberjaþeytingur er með góðum keim af sætu frá kanil og maca: Þú færð líka orkuna úr maca!
Jarðaberjaþeytingurinn er frábær sem millimál eða morgunmatur. Alveg ofsalega góður og hollur í senn. Ekki hika við að prófa.
125ml kókosvatn
1/2 banani
1 dl frosin jarðaber
1 tsk macaduft (fæst t.d. í Fjarðarkaupum) má líka sleppa
1/2 tsk kanill
Klaki
Allt í blandara á fulla ferð og bera svo fram í fallegu glasi. Fallegur drykkur í fallegu glasi. Ómótstæðilegt! 🍓
Guðbjörg er iþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Hún hefur verið í líkamsræktarbransanum frá því árið 1989. Alltaf tilbúin að taka að sér krefjandi verkefni. Haldið ýmis þjálfaranámskeið fyrir þolfimikennara og einkaþjálfara auk þess að vera stundakennari við HR íþróttafræði. Undanfarin 19 ár hefur hún starfað með Agústu Johnson en nú hefur hún stofnað sitt eigið fyrirtæki, G fit heilsurækt og elskar að taka þátt í vellíðan fólks og upplifa árangur í líkamsrækt. Guðbjörg á skilningsríkan eiginmann og þrjú yndisleg börn.