Þessi unaðslega “franska” súkkulaði kaka er algjörlega ómissandi með ísnum eða ný-þeyttum rjómanum yfir áramótaskaupinu.
Hráefni
- 4 egg
- 100 g hrásykur
- 200 g smjör
- 250 g súkkulaði, 70%
- 75 g spelt (gott að nota fínt og gróft til helminga) eða eingöngu fínmalað
Leiðbeiningar
Þeytið saman egg og sykur. Bræðið smjör og súkkulaði í potti og kælið. Súkkulaðið er því næst hrært saman við eggin og sykurinn og speltinu blandað varlega út í. Bakið kökuna í 25-30 mín, við 170°C. Gott að setja smjörpappír í botninn á lausbotnaformi, þá er ennþá auðveldara að skella kökunni yfir á fat. Ég hef oft bakað hana í eldföstu móti.
Hún á að vera blaut í miðjunni.
Krem
- 150 g súkkulaði, 70%
- 2 msk agavesíróp
Leiðbeiningar
Allt sett í pott, hitað rólega og hrært þar til það er bráðið og samlagað. Látið kólna ögn og síðan hellt yfir tertuna.
Mér finnst alveg toppa þessa elsku að bera fram fersk ber með henni t.d. hindber og brómber.
Mmm…þessi himneska súkkulaði-sæla fær mann til að njóta hvers einasta augnabliks í botn!
Njótið alls og það alla leið
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.