Clémence Poésy er með svo einstakt útlit, það er erfitt að taka ekki eftir henni. Hún er ekki þessi dæmigerða glamúr stelpa í Hollywood; náttúruleg og mjög sérstök í útliti. Ég sá hana fyrst í Gossip girl og hún náði strax athygli minni.
Skær augu og falleg húð einkenna þessa ungu snót sem er 28 ára gömul og frá Frakklandi.
Hún hefur leikið í kvikmyndum, t.d Harry Potter, ásamt því að módelast annað slagið. Mér finnst alltaf gaman að sjá þegar Hollywood tekur eitt lítið skref í átt frá glamúr- og pornovæðingu nútímans.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.