Það hefur ringt út í eitt þetta sumarið hér á suðvesturhorninu og margir voru farnir að örvænta að ekki myndi sjást til sólar.
Núna gleður hún okkur hinsvegar brosandi hátt á himni og allir brosa með en það var hinsvegar einn vætusaman dag í síðustu viku að ég þrammaði inn í Farmers Market úti á Ölduslóð til að finna viðeigandi skófatnað fyrir þetta veður. Og í raun hvaða veður sem er.
Stígvélin frá Aigle hafa notið mikilla vinsælda hjá reykvískum glæsidömum í sumar enda um að gera að fara með frönskum klassa í sveitina í sumar.
Fyrir valinu urðu handgerðar gúmmítúttur sem heita Miss Juliette Bottillon og eru framleiddar af Aigle í Frakklandi sem hafa í áraraðir framleitt allskonar gerðir af gúmmístígvélum, allt frá venjulegum gúmmístígvélum yfir í vöðlur og reiðstígvél. Þvílíkar dýrðarbomsur!
Þetta eru fisléttir skór, álíka léttir og Nike Free. Hrikalega þægilegir og úr náttúrulegu gúmmí, fóðruð með pólýester og með mjúkum sóla í botninn. Þú vippar þér í þá og ert komin út í garð eða í útlegu með krakkana í sveitinni. Aftan á þeim hangir svo vörumerki Aigle, fallegt lítið lauf úr einstaklega mjúku leðri sem gefur mjög skemmtilegt ‘touch’.
Stígvélin frá Aigle hafa notið mikilla vinsælda hjá reykvískum glæsidömum í sumar enda um að gera að fara með frönskum klassa í sveitina í sumar.
Mæli með þessum – hefði aldrei grunað að gúmmístígvél gætu veitt svo mikla verslunarsælu (e. retail therapy).
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.