Hjónakornin Sarah og Josh ákváðu að stinga af frá Ohio í Bandaríkjunum þar sem þau búa, og taka með sér ljósmyndara til að sleppa við allt stressið sem fylgir brúðkaupum.
Á síðustu stundu tóku þau u-beygju, ákváðu að hætta við allt umstangið, keyptu miða til Íslands og flugu hingað ásamt ljósmyndaranum Gabe McClintock.
Niðurstaðan eru þessar dýrðlegu brúðarmyndir sem einar og sér virka sem stórkostleg landkynning en myndirnar voru birtar á Huffington Post í fyrradag.
Kíktu líka á þessar myndir sem voru teknar á Hótel Búðum og svæðinu þar í kring. Alveg dýrðlegt!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.