Fallegur undirfatnaður er eitt af því sem ég hreinlega get ekki staðist og að klæðast fallegum undirfatnaði veitir meira og betra sjálfstraust.
Stundum held ég að konur klæðist fallegum undirfötum frekar fyrir sjálfar sig en fyrir karlmanninn (eða konuna) sem deilir lífinu með henni.
Haust og vetrar undirfatalínan frá Princess Tam Tam er einstaklega falleg og langt frá því að vera of dýr til kaups í kreppunni en Princess Tam Tam selur einnig svokallaðan heimafatnað og smekklegan náttfatnað.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.