Við hér á norðurhvelinu erum eðli málsins samkvæmt, ekkert sérstaklega upplýst um munalosta þeirra sem koma úr annari menningu, en mér hefur verið sagt frá einum slíkum.
Innflutningur á Afríkubúum til Bandaríkjanna í þrælahaldinu hefur eins og allir vita sett mark sitt á vitund þeirra en einnig á kynferði sumra, sem er jú samofið manneskjunni og menningunni.
Afrískir-Ameríkanar, eins og svertingjar í Bandaríkjunum kalla sig í dag, deila margir með sér þræla-munalosta.
Kynlífsleikir þeirra ganga út á eitthvað Purpuraliturinn og Kunta Kinte (Kunta var þræll í sjónvarpsþáttunum Rætur) eða Django dæmi þar sem þeim er smellt í gapastokk eða þau eru hlekkjuð á einn eða annann hátt.
Tennurnar í þeim eru skoðaðar og það er farið með þau eins og þræla eða búfénað sem verið er að versla með.
Svo hafa þau mök við hvíta fólkið, láta píska sig, selja og kaupa -síðan er bara farið í vinnuna á mánudeginum og hugsanlega í baráttuklúbbinn þar sem blökkufólkið berst saman gegn kynþáttahatri heimsins.
Útgáfa þessa pervertisma hjá okkur íslendingum væri að fara í sauðskinnskó og þjóðbúning og láta fólk með ýstrur og stóra hatta tala dönsku við okkur. Það er þó eflaust mjög langt í að slíkur fetismi verði ‘mainstream’. Við skulum að minnsta kosti vona það.
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.