Það er svo merkilegt að margt sem tengist einhverskonar vandræðum og vanlíðan leiðir til þess að fólk geri úr því munalosta.
Gasgrímu-munalosti er dæmi um þetta en þær voru ill nauðsyn í seinni heimstyrjöldinni.
Eftir að henni var lokið voru mýmargir sem fengu eitthvað kynferðislegt út úr því að setja á sig gasgrímu og fá enn.
Kynslóð tekur líka við af annari og það er ekki bara fólk sem fæddist fyrir seinna stríð sem fær eitthvað út úr þessu þó að þessi munalosti hafi ekki þekkst fyrir þann tíma.
Sömu sögu er að segja um nasistabúninga
Nasisminn var óumflýjanlega áhrifaríkur atburður sem hafði og hefur enn, áhrif á sálarlíf fólks um allann heim í ýmsum myndum.
Ein þessara mynda er kynferðisleg og það er til fullt af fólki í öllum stéttum og á öllum aldri, sem falast eftir því að komast yfir nasistabúninga til að nota í kynlífsleikjum sínum.
Búningarnir ganga grimmt í kaupum og sölum á alnetinu fyrir uppsprengt verð, enda eru þeir hið mesta tabú og tabú kosta oft peninga.
Skinheads
Leðurhommar svonefndir hafa líka margir hverjir fetish fyrir “Skin-head” klæðnaði, en það eru hermannastígvél, uppbrettar gallabuxur, stuttar úlpur og axlabönd.
Þetta er frekar áhugaverð þversögn því sannir snoðkollar eru jafn mikið á móti hommum og þeir eru á móti innflytjendum og öllum sem eru ekki hvítir og bláeygir.
En hommunum sem hafa þetta blæti er víst slétt sama um það. Þeim finnst þetta bara hot enda snúast svona órar um það sem gerist í kollinum.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.