Þessi munalosti er til í ýmsum myndum en algengasta afbrigðið er þegar menn og konur fá kynferðislega örvun út úr því að stunda kynlíf ofan á hinum ýmsu tegundum húsgagna.
Þá erum við að tala um kommóður, hillur, stóla, borð, innréttingar, sófa og skápa. Fjölbreytni húsgagnanna skiptir þetta fólk miklu máli og sum leika sér að því að leigja hótelherbergi eftir því hvernig húsgögn eru í þeim.
Það er kannski ekki erfitt fyrir meðal menn og konur að skilja þessa hneigð en færri tengja við þá áráttu að örvast kynferðislega yfir vel smíðuðu húsgagni.
Viltu vera stóll?
Sú hneigð er afar sjaldgæf en hún lýsir sér m.a. í því að fólk flakkar á milli húsgagnaverslana og strýkur vel smíðaða stóla, sófa og borð þar til spennan verður svo mikil að það verður annaðhvort að fara flóttalegt út með svitaperlur á bleiku enninu, eða hætta á að vera handtekin fyrir ósiðlegt athæfi á almannafæri.
Svo er það fólkið sem væri hreinlega til í að vera húsgagn. Það er víst nóg til af því, þá erum við að tala um að langa til að vera borð, stóll, kommóða eða eitthvað álíka.