Leðurstígvél, bleyjur, snuð og pelsar: Blæti eða munalosti eru íslenskar þýðingar á orðinu fetish, en manneskja sem er haldin svokölluðum munalosta örvast kynferðislega út frá einhverjum áþreifanlegum hlut, flík eða því að leika eitthvað hlutverk.
Upprunalega merking orðsins fetish er ættuð úr trúarbrögðum. Þá er átt við það þegar trúariðkendur tileinka ákveðnum munum krafta sem ná út fyrir tíma og rúm, samanber uppþornaðar hendur af dánum dýrlingum eða flís úr “krossi” Krists.
Alengustu kynferðislegu munalostar sem vitað er um eru líklegast sokkabanda, leður og gúmmí lostar en þeir eru þó aðeins toppurinn á himinháum ísjaka munalostanna. Allskonar fólk örvast af hreint ótrúlegustu hlutum. Sumt fólk er haldið munalosta í svo miklum mæli að það upplifir enga örvun nema ákveðnir munir séu hafðir með.
Mun fleiri einstaklingar eru þó þannig úr garði gerðir að hafa kannski einhverja munalosta sem eru þá bara ábætir á annars eðlilegar hneigðir, og það er nánast hægt að fullyrða að flestir séu svoleiðis. Margar konur fíla t.d einkennisbúninga en karlar sokkabönd og háa hæla.
Í eftirfarandi pistlaseríu sem telur heila 12 munalosta verður stiklað á stóru um dularfull blæti sem hafa ekki fengið sömu athygli og sokkabönd og leðurstígvél í fjölmiðlum.
Fertug smábörn í framlengdum mömmuleik
Stundum er talað um að fólk vilji ekki fullorðnast. Þá er átt við að manneskjan vilji ekki taka á sig þá ábyrgð sem fylgir því að vera fullorðinn.
Öfgafyllsta dæmið um þetta er fólk sem fær heilmikið kikk út úr því að leika ungabörn. Svona fólk útbýr annaðhvort smábarnaherbergi heima hjá sér, eða leitar til vændiskvenna með þessar þarfir sínar en margar vændiskonur hafa fyrir löngu séð sér leik á borði með þetta fólk. Markaðslögmálin eru jú þannig að eftirspurn kallar á framboð.
Dæmigerð perra vöggustofa á slíku vændishúsi er útbúin risastóru rimlarúmi, leikgrind, hringlum, rugguhestum, dúkkum og öðru dóti í yfirstærðum. Viðskiptin fara svo þannig fram að vændiskonurnar skella sér í mömmuleg föt, setja á sig svuntu og láta hárið í hnút.
Svo er slefandi “smábarnið” matað með stöppuðum banana, það er sungið fyrir það og því er ruggað. Það fær að skríða á gólfinu, æfa sig í að labba og klappa saman höndunum. Stundum er það látið ropa og svo getur verið agalega gaman að horfa á einn Stubbaþátt saman, – eða Latabæ?
Hápunkturinn þegar pissað er í bleyjuna
Þetta er forleikurinn. Hápunkturinn er svo víst þegar “smábarnið” með blætið pissar í bleyjuna sína og það þarf að skipta.
Sumum finnst líka mjög gaman að láta skamma sig fyrir að hafa pissað í bleyjuna þá annað hvort með “skammstuðín þarna litla pissudúkka,” rasskellum eða “skammstuðín pissudúkka” OG rasskellum. Það er misjafnt eftir því hvort örlar á masókisma í manneskjunni eða ekki (að honum komum við síðar).
Geðlæknar hafa fundið það út að þegar fólk örvast kynferðislega af svona löguðu þá á eitthvað atvik að hafa gerst í frumbernsku manneskjunnar sem leiðir til þessa, en akkúrat hvaða atvik leiða til svona hegðunar á fullorðinsárum er óljóst. Vegir Guðs eru víst órannsakanlegir – sem betur fer!?
Bella Baldurs hefur mikinn áhuga á persónulegum þroska, samskiptum, samböndum, ástarmálum, deitmálum og kynlífi.
Hún byrjar hvern dag á núvitundaræfingu áður en hún rúllar sér sígarettu og hellir upp á tvöfaldan espresso.