Britney Spears er kannski ekki uppáhalds tónlistarmaðurinn minn en hún má eiga það að ilmvötnin hennar eru algjört æði!
Ég hef verið að nota ilmvatn úr Circus línunni hennar, Circus fantasy. Ég hef átt annað ilmvatn úr þessari línu, Fantasy Fragrance en það var mjög ólíkt Circus Fantasy. Stundum finnst mér öll ilmvötn sem eru framleidd í sömu línu lykta eins. Það á ekki við um Britney.
Fyrra ilmvatnið í línunni var mjög sætt, sykurpúðar og vanilla alla leið. Alls ekki ilmvatn fyrir alla en samt sem áður mjög gott. Circus Fantasy er mun ferskara en fyrra ilmvatnið. Ilmurinn samanstendur m.a af lime, hindberjum, liljum og apríkósum.
Þetta ilmvatn er tilvalið fyrir konur á aldrinum 18-35.
Flaskan er mjög sæt, blá með rauðum semelíusteinum, stílhreint og flott.
Ilmvatnið er í ódýrari kantinum sem er stór plús því ilmvötn geta verið ansi dýr. Smelltu hér til að kanna verðið og kaupa flösku 😉
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.