Það verður að segjast að fátt er eins sjarmerandi og ilmandi og vel rakaður karlmaður sem við konur getum hjúfrað okkur upp að.
Biotherm Homme er með ansi breiða snyrti -og hreinsilínu fyrir strákana okkar en High Recharge línan er þar á meðal.
Í þessari línu má m.a. fá Cleansing Gel sem er fullkomin hreinsun fyrir andlitið. Hún bætir húðlitinn, hreinsar, viðheldur mýkt og raka og er orkugefandi. Húðin er jafnframt betur vernduð gegn þreytumerkjum og gelið undirbýr hana fyrir rakstur.
Biotherm Homme High recharge Shower gel er svo aftur frískandi sjampó og sturtusápa fyrir hár og líkama í einum og sama brúsanum. F lott til að taka með í ræktina en sápan vinnur gegn þreytu og í henni er ginseng sem er orkugefandi, magnesium sem vinnur gegn streitu og kokkteill af vítamínum C vítamínum sem eiga að viðhalda mýkt og raka í húðinni. Síðast en ekki síst inniheldur þessi hressandi sápa, B5 vítamín sem vernda hárið fyrir utanaðkomandi áreiti.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.