YSL Rouge pur coture – ROSE CARNATION nr. 11 er hinn fullkomni “litaði” nude varalitur. Ég er ekki mikið fyrir NUDE nude varaliti því ég þarf smá lit til að verða ekki of flöt en finnst samt þetta nude look mjög fallegt.
Ég er með krónískan varaþurrk og varalitir eiga oft til að þurrka þær enn meira upp en þessi frá YSL gerir það ekki. Hann gefur silkimjúka áferð og er með smá glossfíling sem nærir varirnar í leiðinni. Eins og nafnið gefur til kynna, Rose Carnation, þá er liturinn í nude flokki með hint af bleikum rósarlit. Very very pretty! Glossy mjúkur varalitur.
Ef þú vilt vera meira máluð um augun en venjulega, hafa varirnar ekki of áberandi en samt með smá karakter þá er þessi góður valkostur.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.