Ef þú villt MEGA glans á varirnar mæli ég hiklaust með Wanted Stellars gloss frá Helenu Rubenstein.
Í glossinum eru litlar agnir sem virðast gullagnir en eru í raun filmu-agnir sem virka eins og spegill. Agnirnar draga í sig ljósið og endurspegla ljósið og útkoman er MIKILL glans. Fyndið hvað snyrtivörur eru orðnar hátæknilegar í dag!
Glossinn er frekar þykkur en klístrast lítið. Gefur vörunum mikla fyllingu.
Kemur í fjórum litum: Liturinn sem ég er að nota heitir Insomnight (nr.72), fallega rauðbrúnn og fer sérstaklega vel við flottan rauðan kjól. Flottur og glamorous gloss fyrir konur sem finnst gaman að glansa (og dansa)!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.