Síðustu 9 mánuði hef ég verið með ört stækkandi maga og því einstaklega dugleg að bera á mig olíur og krem til að auka teygjanleika húðarinnar og það með frábærum árangri, allavega eru “5 mín” í fæðingu og engin slit í sjónmáli!
Eitt besta kremið sem ég hef komist í tæri við er Vita Age- Elasticising ButterCream frá fyrirtæki sem heitir því skemmtilega nafni MAMMA.
Þetta er auðugt krem með einstakri áferð sem smýgur inn í húðina, mýkir hana vel og veitir samstundis næringu og raka. Hrísgrjóna- og möndluolía, sheabutter og E vítamín djúpnærir og ver húðina og það besta við það er unaðslegur möndluilmurinn!
Ég veit að ég mun nota þetta krem áfram þó ég sé ekki lengur að teygjast í allar áttir því þetta krem er hreinn LÚXUS! Ilmurinn og áferðin svo dásamlega lokkandi og ljúf.
Ég mæli heilshugar með þessu dásamlega kremi í gjöf til allra verðandi mæðra og líka hinna sem eiga gott dekur skilið!
Mamma möndlukrem kostar c.a. 4000,- kr í næsta apóteki og endist von úr viti
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.