Clarins Instant Smooth Line Correcting Concentrate: Undrapenninn hjálpar ekki bara við að minnka hrukkur og línur í kringum augu, munn og á enni; hann mýkir broshrukkur og aðrar línur í andliti verða minna áberandi þannig að nokkur ár fjúka í burt.
Varan inniheldur serum sem eykur framleiðslu húðarinnar á kollageni og elastin sem vinna á misfellum í húðinni, viðhalda raka og mýkt húðarinnar og veita slétta og eðlilega áferð.
Undrapenninn er fínn til að bera á yfir daginn til að fríska upp á útlitið og virkar einnig undir/yfir förðun. Þetta er svona “must-have item” í töskuna til að hafa með sér hvert sem farið er. Að minnsta kosti fyrir þær sem elska Clarins.
Hentar vel fyrir 30+
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.