Top Secret línan frá YSL er hugsuð fyrir konur sem eru mikið önnum kafnar og á fleygiferð en vilja samt líta vel út án þess að hafa of mikið fyrir því.
Pore Refiner er hugsað sem einskonar undirlag undir farða og hálfgert ‘serum’ en virku efnin í vörunni hefur þau áhrif að svitaholur draga sig saman og verða minna áberandi.
Fyrir vikið verður yfirborð húðarinnar sléttara og áferðarfegurra.
Pore Refiner hentar þannig líka konum sem hafa glímt við bóluvandamál eða eru með ör húðinni og/eða opnar svitaholur.
NOTKUN: Þú notar þetta svipað og serum. Lætur s.s. Pore Refiner á húðina áður en þú berð á þig dagkrem og svo kemur meikið. Þær sem hafa náttúrulegan raka í húðinni geta sleppt dagkremi og látið farðann beint yfir Pore Refiner.
Árangurinn verður áberandi eftir reglubundna notkun þó að hann sjáist strax eftir eitt skipti. Þú finnur líka hvernig efnið þéttir húðina og ‘dregur hana saman’ þannig að hún virkar þéttari.
Þetta er skemmtileg nýjung frá YSL en HÉR má sjá fleiri vörur úr þessari flottu línu frá YSL
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.