Naked Glow er merki sem hefur ekki verið áberandi á Íslandi en hefur náð nokkrum vinsældum í Bandaríkjunum og er mikið notað af förðunarfræðingum…
…Ég hafði aldrei prófað Naked Glow vörurnar þangað til fyrir stuttu en þá eignaðist ég gloss sem heitir The Lip Lift Gloss.
Ég fékk mér fallega rauðan lit sem heitir True Love # 28 en sá litur er innblásinn af Berry Martini kokteilnum.
The Lip Lift Gloss er ekki bara gloss heldur einnig nærandi meðferð fyrir varirnar. Glossinn inniheldur mýkjandi og græðandi efni, meðal annars e-vítamín, jojoba olíu, ólívu oil en glossinn er laus við paraben.
Aðalmálið við þennan gloss er svo að hann hefur mjög ‘plumping’ áhrif á varirnar og fyllir upp í allar fínar línur, maður sér strax mun og varirnar verða sléttar og kyssulegar.
Flottur gloss fyrir mega glansandi og ‘pouty’ varir.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.