Á hverju ári kemur Escada með nýjan sumarilm og hvert ár virðast þeir algjörlega hitta í mark, ég hef amk. fallið gjörsamlega fyrir öllum sumarilmum síðustu 5 árin.
Sá nýjasti Taj Sunset er engin undantekning, þetta er dásamlegur, léttur ávaxtailmur með keim af ferskum mangó, flauelsmjúkum kókos og rifsberjum sem minnir á nýpressaðan ávaxtakokteil.
Escada hefur fyrst allra ilmvatnsframleiðenda náð að fanga ilm Alphonso mangósins, afar safaríkur og bragðmikill mangó sem ræktaður er yfir hásumar-tímann á Indlandi. Ilmurinn er kryddaður og ferskur með keim af sítrus.
Mér finnst þessi ilmur fullkominn fyrir sumartímann, ég sé mig alveg fyrir mér við sólsetur á suðrænni strönd með ávaxtakokteil í annarri og ástina mína í hinni að dansa inn í nóttina.
Glasið er líka flott og viðeigandi, appelsínugult með indversku “henna”-mynstri.
Smelltu HÉR til að splæsa í þennan ilm. Ef þú ert sérlegur aðdáandi Escada er um að gera að kaupa hann sem fyrst því sumarilmir koma alltaf í takmörkuðu upplagi.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.