Nýjasti ilmurinn frá Davidoff var að koma á markað en hann fékk það ‘hógværa’ heiti Champion.
Ekkert að skafa af því…
Ég fékk í hendurnar sturtusápu og sjampó (2in1) af þessari vöru og kann vel að meta.
Þetta er þokkafull lykt sem nær einhvernvegin að vera frískleg og karlmannleg á sama tíma.
Frískleikinn kemur m.a. af bergamot og sítrus sem er í ilminum en ‘bassinn’ kemur úr sedrusviði og sage… mjög ljúft.
Ilmurinn er í sport-kategoríunni en flaskan er í laginu eins og handlóð. Sannarlega eitthvað fyrir stráka sem eru duglegir í ræktinni.
Eins og sjá má (á þessari kynþokkafullu auglýsingu) er líka alveg verið að stíla inn á þann markhóp…
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.