Nú geta stilltu stelpurnar líka leyft sér að vera rokkaðar með góðri samvisku.
Rock Your Nails serían frá DIOR kemur sterk inn í sumar enda er hér um að ræða endalaust kúl litaseríu í naglalökkum sem setur punktinn yfir i-ið í hvaða ‘átfitti’ sem er.
Naglökk eru að verða ómissandi fylgihlutur og þá myndi ég segja að í litavalinu hjá Dior ættu allar að finna sér eitthvað fallegt.
Perfecto er dökk grár, næstum svartur litur, sem ég myndi kalla steingráan því hann minnir mig á fallega sléttan fjörustein.
Mér finnst þetta mjög fallegur litur af því hann er mátulega mikið rokk en ekki yfir strikið. Allar konur ættu að geta notað hann, meira að segja stilltu stelpurnar sem hafa hingað til óttast að vera of mikið “rokk”.
Það má eiginlega segja að áferðin á þessu lakki sé reyklituð en á sama tíma með fallegum glans og áferð.
Það þornar fljótt og burstinn er mjög þægilegur, ekki sérlega langur en flatur þannig að jafnvel mestu klaufar eiga gott með að bera lakkið á. Ég mæli með því að gera tvær umferðir.
Rock Your Nails litir:
- Rock Your Nails Hit # 887 Purple Mix: Reyklitaður fjólublár litur fyrir seiðandi lokadans á dimmu diskóteki.
- Rock Your Nails Hit # 704 Nirvana: Grágrænn litur sem blandar karlmennsku og paradísarheitum kvenleikans.
- Rock Your Nails Hit # 997 Blue Label: Djúpblár, “signature” rokk a la Íslandía sem þú getur notað við allt og öllum stundum.
- Rock Your Nails Hit # 824 Underground: Brúnn eins og tvöfaldur latte.
- Rock Your Nails hit # 804 Perfecto: Næstum svartur, eins og fallega máð fjörugrjót.
Smelltu HÉR fyrir verð og/eða til að kaupa Perfecto.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.