Ég vildi fá púður sem væri létt, mjúkt, og myndi þekja vel án þess þó að steypa mann í púðurmeiki.
TRIPLE TOUCH COMPACT er frábær nýjung frá Kanebo/Sensai sem kom á markað seint á síðasta ári.
Ein dós – þrjár förðunavörur!!!
Dósin inniheldur tvo hyljara og fast púður. Vörurnar innihalda jafnframt sérstök rakaefni SENSAI til þess að tryggja rakagjöf allan daginn og hylja á einfaldan hátt húðvandamál sem annars kæmu betur í ljós vegna þurrks. Með þremur einföldum skrefum getur hver sem er öðlast silkimjúka húð með jafnri, ferskri og geislandi áferð.
- Hvíti hyljarinn– Er gegnsær og ótrúlega mjúkur viðkomu, framleiddur úr Pure Pearl Extract til þess að mynda slétt yfirborð. Dúppið létt með fingri til að hylja fíngerðar línur og svitaholur.
- Krem hyljarinn– Er litaður og kremkenndur hyljari sem veitir raka og inniheldur Oil-in Powder. Dúppið létt með fingri til að hylja bauga og mislita húð. Notið eitt og sér eða yfir Colourless Concealer.
- Fasta púðrið– Er loka skrefið sem inniheldur Moistened Powder sem innsiglar rakann og sveipar húðina silkimjúkum og geislandi blæ.
Þessi ómótstæðilega blanda sléttir greinilega úr hrukkum og hylur mislita húð – það er vel hægt að mæla með henni fyrir sumarið
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.