Það eru komnir nýjir litir í naglakkinu Resist & Shine frá L’Oréal. Nokkuð álitlegur, antikbleikur litur númer 155 datt í innkaupakörfuna í síðustu ferð í apótekið og síðan þá hefur hann setið sem fastast á nöglunum.
Helsti kostur þessa naglalakks er einmitt endingin sem lakkið ber nafn sitt af: Resist & Shine eða Endist & Glansar eins og nafn þess væri líklega á íslensku!
Þetta er sterkt naglalakk fyrir multitask konur sem nota hendurnar bæði til vinnu heima við sem og á vinnumarkaðnum.
Endingin er allt að fimm dagar án þess að lakkið flagni sjáanlega. Þá er miðað við eina umferð af naglalakki og síðan eina bunu af glæru yfirlakki.
Eins er hægt að nota tvær umferðir af lakkinu og fá þannig dýpri lit, sleppa jafnvel glæra lakkinu því það er sérlega fallegur glans í Resist & Shine frá L’Oréal.
Guðrún Gunnarsdóttir er menntuð í viðskiptafræði en hefur lengst af starfað í tískubransanum. Nú rekur hún heildsölu ásamt eiginmanni sínum. Hún er sérlegur unnandi Parísarborgar en þangað fer hún nokkrum sinnum á hverju ári. Guðrún er hrútur, fædd 1976.