Það var núna nýlega sem ég prófaði algjöran lúxus maskara frá Yves Saint Laurent en hann heitir ‘Shocking’ Mascara…
…Ég er mikill YSL aðdáandi og þessi maskari gerði mig að enn meiri aðdáanda. Maskarinn er flauelsmjúkur og þykkir fyrir allan peninginn! Hann ýkir hvert og eitt augnhár fyrir sig og óvenjulega lagaður burstinn nær að greiða vel í gengum hárin. Hann kemur í gylltum umbúðum og á þeim stendur stórum stöfum ‘Shocking‘, mega smart!
En ég er ekki eina sem er sjúk í þennan maskara því stjörnustílistinn Rachel Zoe fór einnig fögrum orðum um gripinn og kallaði hann ‘Magic Mascara‘ HÉR.
Magic mascara:
I never underestimate the importance of putting that final magic touch on an outfit or beauty look, which is exactly why I’m freaking out over Yves Saint Laurent’s Shocking Mascara. Filled with a luxuriously creamy formula, this wondrous wand boosts serious volume into each individual eyelash. This mascara is a game-changer in one’s makeup bag. Seriously, your eyes are going to love it!-Rachel Zoe
Svo fyrir 100% skvísu drama er hægt að nota Shocking eyelinerinn frá YSL með. Þetta er blautur eyeliner með mjög mjóum og mjúkum pensli sem gefur nákvæma og kooolsvarta línu. Þessi helst mjög vel á og lekur/flagnar ekkert eftir því sem á líður á daginn.
Sjokkerandi fínt tvíeyki frá YSL!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.