Ég er nú þannig að ég forðast allar vörur sem eru með mynd af Playboy kanínu eða heitir eitthvað Playboy – þessvegna kom það mér skemmtilega á óvart hvað Playboy-ilmurinn Play It Spicy er grípandi og góður…
…Playboy gaf út þrjá ilmi árið 2010: Play it Lovely, Play it Sexy og Play it Spicy.
Þessi Play it Spicy hentar betur á kvöldin en hinir tveir að mínu mati. Ilmurinn er kryddaður eins og nafnið gefur til kynna en ilmar einnig af blómum: Granatepli, liljur og vanilla er eitthvað af því sem finna má í þessum ilm.
Mjög skemmtilegur og sexý ilmur, svo sakar ekki að flaskan er alveg krúttleg, kúlulaga með kanínueyru.
Af því að mér leist svona vel á ilminn sjálfann þá varð ég nú að prófa lyktareyðinn sem kemur í úða-formi (sem ég fíla betur en stifti). Ilmurinn af honum er mjög svipaður og af ilmvatninu nema mér finnst vera aðeins meiri ávaxta-blóma lykt af honum.
NIÐURSTAÐA: Maður á greinilega ekki láta merkin eða umbúðirnar blekkja sig!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.