OH MY GOSH!… er skemmtilegt nafn á nýrri línu af naglalökkum frá hinum ofurskemmtilega en ódýra snyrtivörumerki GOSH.
Þetta eru naglalökk í smærri umbúðum en gengur og gerist. Minni en vanalega en stærri en t.d. Depend. Mitt á milli.
Ég er með lit hér á borðinu sem kallast CLASSIC RED og hann stendur algjörlega undir nafni. Er eeeelldrauður, póstkassarauður ef svo mætti að orði komast en stundum getur verið erfitt að finna einmitt þannig lit.
Eins og allar sem hafa prófað naglalökk frá GOSH vita eru þetta mjög fín lökk á góðu verði. Endast vel, þorna fljótt og gefa fallegan glans. Einmitt það sem maður vill.
Classic Red er ódýr leið til að ‘poppa upp lúkkið’. Þú verður samstundis meira ‘glam’ með eldrautt naglalakk. Smá úmpf* í hversdagslífið á um það bil 1000 kr glasið.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.