Nú er kominn nýr ilmur frá söngkonunni Christinu Aguilera. Þessi nýji ilmur er númer fjögur í röðinni og heitir Secret Potion…
Ilmnum er líst sem dulafullum og ‘sexí’ ilm fyrir konur sem vilja vera miðpunktur athyglinnar en ilmurinn er innblásinn að kvöldinu og er því pínu áberandi og partí-legur. Persónulega finnst mér hann líka bara voða ‘spæsí’ og fínn fyrir yngri stelpur.
Ilmurinn einkennist af ávöxtum og kryddi og hefur svo einhverskonar austurlenskan unidrtón. Minnir mig pínu á ávaxta-reykelsi. Mandarína, jasmína, lótus, musk og krydd er eitthvað sem maður verður var við þegar maður úðar þessum á sig.
En eins og áður sagði finnst mér þessi ilmur henta ungum stelpum vel. Kemur líka í svo sætri gegnsærri flösku og vökvinn sjálfur er bleikur. Svo fylgir lítið nisti með sem hægt er að opna og inni er lítill spegill.
Þessi ilmur er afskaplega góður og hann er líka á fínu verði. Hentug gjöf fyrir ungar skvísur sem hafa gaman af því að punta sig.
Kíktu svo á auglýsinguna fyrir iliminn sem er hér fyrir neðan, það er aldeilis sem maður verður fínn af því að nota þetta ilmvatn!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=mUWRBWCN2rY[/youtube]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.