Ég er alveg að elska þetta ‘nude’ útlit fyrir sumarið og eins og ég hef verið að fjalla um undanfarið þá er sumarlínan frá Gosh fullkomin til að framkalla þetta ‘nude look’…
…Sumar lína Gosh leggur einmitt áherslu á náttúrulegt og ferskt útlit þar sem Less is More. Nýjasta varan sem ég prófaði úr þessari rómantísku Gosh línu er Velvet Touch varalitur í litnum Nougat #122.
Girnilegt nafn!
Þessi varalitur er tilvalinn til að ná fram þessu Less is More útliti en hann er ljósbrúnn og mattur en mjúkur. Liturinn er svipaður náttúrulegum lit varanna en mun dýpri og meira djúsí.
Varaliturinn fullkomnar rómantíska sumarförðun þar sem megináhersla er lögð á gallalausa og ljómandi húð.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.