Eins og Díana skrifar hér þá er nýja Pure & Natural línan frá NIVEA 95% af náttúrulegum uppruna og er byggð á innihaldsefnum beint úr náttúrunni, svo sem grænu tei, aloe vera, kamillu og arganolíu…
…Öll þessi efni eru lífrænt ræktuð og vottuð. Ég eignaðist augnskugga úr þessari nýju línu sem heitir Foggy Gray og er númer 18.
Þennan augnskugga er ég búin að nota mikið undanfarið er er mjög sátt með hann. Hann er flottur hversdags en þetta er alveg mattur brún-grár litur.
Augskugginn kemur í átta mismunandi litum, allt frá brúnum tónum til grænna tóna. Áferðin er mjög mjúk og augnskugginn endist vel á augnlokinu án þess að hrynja eða leka til.
Góð og ódýr vara út flottri línu sem er 100% paraben laus og hentar viðkvæmri húð.
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.