Ilmvatnið playboy PLAY IT LOVELY er ferskur og upplífgandi blómailmur. Það er mikill kvenleiki í þessum ilmi og er hann þægilegur til notkunnar hvort sem það er daglega eða spari.
Þetta er ótrúlega heillandi og ferskur ilmur sem fer vel við hvert tækifæri og hann hentar ungum konum frá svona 16 ára alveg einstaklega vel enda hefur merkið verið sérlega vinsælt hjá þeim hópi þó að allar konur geti vissulega notið hans.
Umbúðirnar eru líka mjög töff! Glasið er kúla og svo er tappinn svartur á litinn og í laginu eins og kanínueyru með slaufu neðst.
Play it Lovely er hluti af ilmvatnaseríiu frá Playboy sem er bæði fyrir dömur og herra. Þar er meðal annars að finna Play it Rock, Play it Sexy og Play it Spicy fyrir dömurnar en fyrir herrana færðu ilmi sem bera borgarnöfn; London, Miami, New York, Vegas, Hollywood, Malibu og Ibiza.
Hver ilmur ber með sér karaktereinkenni sem tengjast nafninu og þannig er t.d. Play it Lovely kvenlegri og léttari en t.d. Play it Spicy og þannig er eitthvað fyrir alla.
Vinur minn prófaði New York ilminn fyrir strákana og varð alveg húkkt. Besti vinur hans var líka svo hrifinn að hann ætlar að fara og kaupa sér ilminn líka en New York ilmurinn er bæði ferskur og karlmannlegur á sama tíma. Svo er glasið mjög skemmtilega hannað með litríkri graffití kanínu.
Allir vinir mínir eru semsagt að fíla þetta og furða sig um leið á því, því hverjum dettur í hug að þefa af Playboy lykt?
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=g-75Y61ClK4[/youtube]Viktoría Hinriksdóttir er yngsta pjattrófan. Fædd í ljónsmerkinu árið 1994. Hefur áhuga á öllu sem tengist hreyfingu og íþróttum, mataræði, tísku og öðru sem gerir lífið fallegra, betra og skemmtilegra.