Einn af mínum uppáhaldsvaralitum kallast Mandy og er frá Make Up Store. Mandy er fallega bleikur.
Þú getur að einhverju leyti stjórnað því hversu sterkur bleiki liturinn er með hversu mikið þú setur á þig. Stundum vill maður hafa litinn sterkan en stundum vill maður hafa hann daufan og þá er sniðugt að setja þunnt lag og svo varasalva yfir. Mér þykir þægilegt að nota pensil þegar ég set á mig varalit, þá finnst mér ég stjórna áferðinni betur og auðveldara að hafa hann akkúrat á vörunum.
Prófaðu það næst…