Fuscia Fix Tinted Lip Conditioner frá MAC er dásamlegur varasalvi í “fuschia” bleikum lit.
Hann er með sætu ávaxtabragði (ég er sökker fyrir því) og SPF vörn 15 sem er nauðsynlegt í sumar, því það þarf að verja varirnar rétt eins og aðra líkamshluta.
Tinted Lip conditioner inniheldur fullt af góðum efnum eins og sæta möndlu olíu, shea butter, avodado olíu, mururmuru butter, allt góðar olíur sem hjálpa vörunum að halda sínum eðlilega raka.
Ég nota hann óspart og finnst best hvað varirnar verða kyssilegar og það er gott bragð af honum 😉
Kostar 3790 kr hjá MAC *Smack*…
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.