L’Oréal vatnsheldi augnblýanturinn heitir infaillable og ber nafn með réttu: Hann stendur með þér í gegnum þykkt og þunnt.
Ég veit að margar tilvonandi brúðir hafa notað þennan vatnshelda augnblýant á brúðkaupsdaginn sinn af því að hann er vatnsheldur og helst á sínum stað út tilfinningaþrungna athöfnina.
Sjálf hef ég notað hann bæði þegar ég fer í dans og sund. Hann haggast ekki á, ólíkt öðrum augnblýöntum sem renna stundum of mikið til.
L’Oreal Infaillible Stylo Eyliner er einnig þægilegur í notkun; liturinn er skrúfaður upp og hann þarf aldrei að ydda. Á öðrum endanum er hvítur gúmmíbursti sem ég nota til að mýkja línuna og gera augnaráðið fallegra.
Það eina sem þú þarft að hafa við höndina er góður augnfarðahreinsir. Algerlega ómissandi til að ná augnlitnum af, svo þétt stendur hann með þér!!
Smelltu HÉR fyrir verðið.
Guðrún Gunnarsdóttir er menntuð í viðskiptafræði en hefur lengst af starfað í tískubransanum. Nú rekur hún heildsölu ásamt eiginmanni sínum. Hún er sérlegur unnandi Parísarborgar en þangað fer hún nokkrum sinnum á hverju ári. Guðrún er hrútur, fædd 1976.