L´Occitane Angelica Eye Roll-On er kælandi “baugabani” sem kemur í litlum umbúðum sem minnir á roll-on og í flöskunni er stálkúla sem kælir húðina um leið og þú rennir henni yfir augnsvæðið.
Baugabaninn inniheldur virk náttúruleg efni unnin úr hvönn. Létt hvannarolían vinnur strax á þrota og dökkum baugum og sléttir úr húðinni svo þú virðist yngri og frísklegri.
Hvönn hefur verið notuð til lækninga í mörg hundruð ár. Hún vinnur á þreytu og álagi því hún er talin hressa og afstressa þá sem á því þurfa að halda. Hvannar-ilmkjarnaolían gefur einnig raka og sléttir húðina.
Mér finnst þetta mjög notalegt roll-on og frábær leið til að byrja daginn og stroka burtu þreytuna.
Vörurnar frá L´Occitane eru einnig frábærar að því leiti að þær eru náttúrulegar, aukaefnalausar og ofnæmisprófaðar og koma í umhverfisvænum umbúðum. Þú færð þær í Kringlunni og á Laugavegi.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.