Þessi er svo “beautiful” – Lingerie De Peau farði í föstu formi eða compact eins og það kallast.
Þetta er ekta ‘flugfreyjumeik’. Farðinn kemur í fallegri öskju með svampi og HYLJARA sem er alveg nýtt á markaðnum. Hyljarinn sem fylgir fellur alveg við litinn á farðanum, allt í einni öskju.
Þú notar hyljarann sem highlighter fyrir t.d. nefið og á öllum stöðunum sem maður vill lýsa eða til að fela og hylja. Þó að þetta sé compact farði þá færðu ekki þessa þykku áferð heldur er farðinn eins og filma yfir húðina…ekki áberandi “make up”.
Litirnir eru meiriháttar fallegir með fallegri elegant áferð eins og Guerlain er þekkt fyrir. Það er allt svo elegant og hefðarkisulegt sem kemur frá Guerlain.
Lingerie farðinn er fyrir allar húðgerðir.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.