Issey Miyake er þekktur fyrir hvítan lit og ferskleika en nú bætir hann blómum við og gerir ilminn með því kvenlegan og mjúkan. Einstaklega heillandi ilmur sem minnir á fölhvíta húð og viðkvæmni geishunnar japönsku.
L’EAU D’ISSEY FLORAL er einfalt nafn yfir nýja ilminn frá Issey enda þýðir Flora einfaldlega “blóm”.
Framleiðendurnir segja ilminn henta konunni sem er meðvituð um kvenleika sinn, tilfinninganæm, rómantísk en jafnframt nútímaleg og glæsileg. Ilmurinn samanstendur af liljum, rósarilm, musk og hvítum við.
Ekta rómantískur og kvenlegur klassailmur frá Issey – kærkomin öllum aðdáendum hans.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.