Við vitum flestöll að góður nætursvefn er besta leiðin í baráttunni gegn hrukkum og þess vegna hafa svo margir snyrtivöruframleiðendur hannað næturkrem sem vinnur á öldrun húðar þegar þú sefur.
Ég sjálf eldist um nokkur ár ef ég stressast upp og að vera með ungt barn getur oft valdið því að ég fæ ekki góðan nætursvefn. Til að líta vel út þarf ég helst mína 7-8 tíma.
Ef ég hef fengið lítinn svefn og rekst á móður mína á hún það til að vera ekki spar á orðin “Hvað er að sjá þig! Þú lítur skelfilega út, hefur þú ekkert sofið? Þú verður að hvíla þig,” hún talar svona til mín af umhyggjunni enda afar hreinskilin þegar kemur að þreytumerkjum dótturinnar.
Því lærði ég snemma að passa upp á svefninn, drekka nóg vatn og hugsa vel um húðina og fór því að nota næturkrem á nóttunni til að næra húðina og vinna gegn hrukkunum.
Lancôme Rénergie Lift Volumetry Nuit
Eftir að hafa þvegið andlit og háls fyrir nóttina og borið á mig næturkremið Rénergie Lift Volumetry Nuit frá Lancôme verður húðin mín sjáanlega þéttari, sléttari og unglegri. Gerð hefur verið prófun á 52 konum sem notuðu Rénergie Lift Volumetry Nuit — þær báru næturkremið á sig fyrir svefninn í 4 vikur og þetta var útkoman:
- Húðin varð sléttari eins og henni hafi verið lyft 85%
- Húðin varð þéttari og virðist endurnýjuð 98%.
- Húðin virtist úthvíldari 96%
- Þreytumerki fjarlægð 85%
- Dregur úr hrukkum 65%
- Húðin virðist mýkri 100%
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.