Flash bronzer dream legs brúnkuspreyið frá Lancome er einstaklega flott leggja-brúnkusprey sem gefur leggjunum fallega brúnku.
Þetta er ótrúlega þægilegt í notkun og auðvelt að spreyja á leggina t.d. ef að maður er að fara eitthvað fínt daginn eftir og vill bera berleggja eða í kvartbuxum.
Ég prófaði þetta fyrir rúmlega viku síðan kvöldið áður en ég fór á ball og útkoman kom betur út en ég bjóst við!
Ég varð mjög fallega brún á leggjunum, bara svona eins og eftir viku dvöl í sólarlandi. Brúnkan var bæði flott og alls ekki gervileg. Liturinn hélst á í sirka 5 daga en dafnaði strax eftir fyrstu sturtu.
Self tan fyrir fætur frá Lancome kemur í brúnum ílöngum spreybrúsum og er mjög þægilegt til notkunnar. Ég setti þetta kvöldið áður en ég fór ballið, þetta kom rosalega vel út og áferðin var mjög falleg, jöfn og ekki neinir flekkir!
Viktoría Hinriksdóttir er yngsta pjattrófan. Fædd í ljónsmerkinu árið 1994. Hefur áhuga á öllu sem tengist hreyfingu og íþróttum, mataræði, tísku og öðru sem gerir lífið fallegra, betra og skemmtilegra.