Hér er komið augnkremið fyrir allar glæsilegar dömur sem eru 50 ára og eldri..
Vorið er á næsta leiti og sumarið fylgir fast á eftir. Þá er um að gera að verja hina viðkvæmu húð undir augum fyrir UV geislum og utanaðkomandi áreiti.
ABSOLUTE augnkremið þéttir húðina, fjarlægir hrukkur og endurnýjar á aðeins sex dögum!
Kremið er fyrir þær sem eru með mikinn þurrk, skortir teygjanleika og eru með daufan húðlit í kringum augnsvæðið. Kremið er uppbyggjandi, nærandi og fegrar húðlitinn ásamt því að auka á teygjanleika húðar. Enn fremur vinnur það líka vel á litabreytingum.
Svo er gaman að geta þess að dagkremið í línunni hefur fengið Marie Claire verðlaunin sem besta krem í sínum flokki en kremið hefur fengið verðlaunin 2 sinnum. Árið 2001 þegar það kom nýtt á markað og aftur þegar þeir breyttu og bættu línuna árið 2008.
Svona lúxusvara er tilvalin sem gjöf til ömmu eða mömmu.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.