Ein nýjungin frá Lancôme er þessi L’Absolu Nu varalitur. Hann er einstaklega léttur og mjúkur og kjörinn til að nota hversdags…
…Hann er mjög léttur og maður finnur varla fyrir honum. Hann nærir varinar ásamt því að gefa þeim þunnt lag af glansadi gegnsæjum lit. Ég eignaðist lit númer 203 sem heitir Beige Feutré, fallegur ´nude´ litur sem hentar frábærlega með dökkri ´smokey´ förðun eða bara með hversdags léttri förðun.
Það er Kate Winslet sem er andlit þessa L’Absolu Nu varalits enda er hún alltaf mega flott með þessa léttu og náttúrulegu förðun sem varaliturinn stendur fyrir.
Flottur varalitur og ekki skemmir fyrir að umbúðirnar eru blómum skreyttar og það er segull í lokinu sem tryggir að það helst á sínum stað!
Kíkið á myndbandið fyrir neðan og sjáið Kate svaka káta og ´sensual´ með L´Absolu Nu varalitinn sinn…
[youtube width=”405″ height=”324″]http://www.youtube.com/watch?v=t-Xe_mX_XS4&feature=player_embedded[/youtube]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.