Kanebo cellular performance hydrachange tinted gel cream er litað dagkrem með mjög langt nafn. En hvað segir þetta nafn okkur?
Þetta er litað dagkrem í gelformi, minnir einna helst á souffle. Það er mjög rakagefandi en um leið þekjandi, sannkallað lúxus-dagkrem.
Það sem gerir Kanebo Sensai Cellular Performance línuna að lúxusvöru eru eiginleikar sem framkalla svokallaða “rakakeðjuverkun„ sem örvar myndun hýlúrónats, tryggir mikla og stöðuga rakagjöf innan frá og veitir húðinni meiri fyllingu.
Leyndarmálið eru dásamlegu undraefnin í kreminu:
“CPX VITAL Extrakt” sem hámarkar frumustarfsemi húðarinnar og “SHILAN Extrakt” sem á áhrifaríkan hátt eflir endurnýjun húðfrumanna. Þessi áhrifaríku innihaldsefni ásamt sérvöldum jurtum náttúrunnar og hinu dýrmæta Koishimaru silki skila sér í bættum eiginleikum frumanna sem veita húðinni fullkominn raka og undurmjúka áferð.
SHILAN Extract
Unnið úr rótum Shilan (fjólublárrar orkideu). Shilan extrakt örvar
leiðtogafrumur í yfirhúðinni og hrindir af stað keðjuverkandi áhrifum
þannig að frumuendurnýjun húðarinnar verður eins og best verður
á kosið.
Koishimaru Silk Extrakt
Unnið úr verndarhýði Koishimaru silkisins, dýrmætasta silki
Japans, þekkt sem hinn, “örsmái fjársjóður”. Koishimaru silkið
bætir rakabúskap húðarinnar og eykur magn hýaluronats í húðinni.
Viðheldur raka og á heiðurinn að silkimjúkri áferð húðarinar.
CPX VITAL Extract
Einstakt og sérlega máttugt innihaldsefni sem samanstendur
af Apricot Essence Complex á samt fjörum öðrum náttúrulegum
innihaldsefnum sem sjá húðinni fyrir raka, þannig að hún haldist
stinn og ver hana gegn hrukkum og ójöfnum litarhætti.
Ég get allavega vottað fyrir það að þetta er mjög notalegt og rakagefandi krem með SPF vörn 20 sem hentar húð eins og minni sem getur verið bæði þurr og viðkvæm, kremið gefur húðinni mjög fallega áferð og er fullkomið fyrir þær sem vilja ekki “meikaða” útlitið. Kremið er í sérlega elegant umbúðum og fæst í þremur litum svo allir ættu að fá réttan lit fyrir sig.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.