Söng -og poppdívan Jennifer Lopez er ofurkona nútímans, dugleg að sitja fyrir í tímaritum, leika í bíómyndum, semja lög, halda tónleika, hanna dömufatnað, reka stórveldi, vera ástrík eiginkona og ala upp tvíburana sína.
Jennifer Lopez er líka orðið þekkt nafn í ilmvatnsbransanum og nú er hún búin að hanna enn einn ilminn en þessi ber heitið Love and Glamour.
Ilmurinn er afar kvenlegur og ilmvatnsglasið á að minna á glamúr Hollywoodstjörnunnar, enda hannað eins og ávalur kvenlíkami í síðum kvöldkjól. Förðun Jennifer Lopez og stíll hennar í auglýsingaherferðinni minnir einmitt mjög á glamúr og stíl hinnar dáðu leikkonu Ritu Hayworth sem var mjög vinsæl upp úr 1940.
Love and Glamour er mildur, ferskur, frekar léttur ilmur með keim af blómum, mandarínum, sandalviði og alls ekki yfirþyrmandi.
Hér er svo eitt nýjasta myndband þessarar ofurkonu, svona til að koma okkur í stuð.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=t4H_Zoh7G5A[/youtube]Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.