Grátt verður sjóðandi heitt í förðun í vor og sumar en meðal þeirra sem fagna gráa litnum eru förðunarmeistararnir hjá Guerlain.
Þegar kemur að augnskuggum er Guerlain með frábært lita úrval í vor- og sumarförðunarlínunni 2011.
Til að vera í takt við gráa æðið í sumar, valdi ég mér augnskuggalit # 186 L’INSTANT DÚNE ONDÉE (sjá mynd) – fallega grár en hlýr í senn.
Augnskugginn frá Guerlain er silkimjúkur að bera á augnlokinn, litinn er hægt að nota bæði þurran og blautan og hann er einstaklega fallegur einn og sér en gráa litinn er einnig töff að blanda með öðrum lit eða litum og hægt er að gera allt frá smoky eyes-förðun yfir í dagförðun.
Einstaklega flottur augnskuggi í nettu gylltu, fallegu boxi, hentar við öll tækifæri.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.